Við fórum í Ólafsvík seint á laugardag, vorum ekki komin á leiðarenda fyrr en rétt fyrir miðnætti. Hilmir var svolítið tregur til að leggja af stað, því vinur hans sem við buðum með, guggnaði á því og ákvað að vera bara heima. Þrír aðrir vinir voru prófaðir, en enginn gat komið með :( En eftir smá fortölur (og jafnvel mútur!) tókst að lokka prinsinn inn í bílinn. Stoppuðum í Mosó til að ná í lykla og vorum leyst út með rós úr garðinum, spægipylsu og camenbert í nesti :) Fórum lengri leiðina og keyrðum fyrir nesið í stað þess að fara Fróðárheiðina, og fengum okkur kakó og heimabakað brauð á Hellnum - sátum meira að segja úti í sólinni þótt það væri að nálgast miðnætti. Þegar við komum í Hruna, fórum við beint í bólið, þar sem við höfðum pantað pláss á Baldri klukkan 9 næsta morgun og þurftum því að vakna klukkan 7.
Bátsferðin var skemmtileg, yndislegt veður, sjórinn sléttur og útsýnið flott. Eitt gullkorn kom frá Hilmi þegar hann var að horfa á lítinn sætan kolsvartan Bulldog sem var merktur Max, í fanginu á einum túristanum. Hilmi fannst eiginlega að hann ætti frekar að heita Pepsi Max, út af litnum :)
Frá Brjánslæk keyrðum við sem leið lá suður/vestur aftur, með viðkomu á Staðarfelli, þar sem kirkjan var skoðuð og Hreiðar rifjaði upp gamlar minningar síðan fyrir 3 árum :) Hilmir svaf fyrripart leiðarinnar, en var glaður með geislaspilarann sinn í aftursætinu þegar hann vaknaði. Honum fannst líka gaman að leika heimatilbúna útgáfu af bílabingói, sem gengur út á að finna nokkra hluti, dýr eða menn í umhverfinu. Við völdum þá fimm hluti, sem einhver annar átti að finna, og svo var róterað þannig að hinir þurftu að finna það sem þeir höfðu sjálfir valið. Erfiðast reyndist að finna barnavagn og bónda (tókst þó þegar Baldur lá við Flatey, því þá kom einmitt bóndi í köflóttri skyrtu og gúmmístígvélum út á bryggju, alveg eins og Hreiðar hafði sagt að hann ætti að vera :) Reyndar fundum við ekki einn einasta barnavagn alla ferðina, en mættum hins vegar tveimur fornbílum - og rifjuðum þá upp að við sáum einn í viðbót á Grundarfirði síðasta sumar!!! Hvað er þetta með Snæfellsnesið og fornbíla - ég bara spyr???
Við vorum svo ekki komin fyrr en um sexleytið til Stykkishólms aftur og fórum þá aðeins í sundlaugina og svo á Fimm fiska þar sem búið var að loka öllum búðum og við ekki með neinn mat að ráði. Þar sátum við aftur úti í sólinni og fór vel um okkur. Ég veit ekki hvað er að gerast á þessu landi, er orðin hrædd um að Global Warming sé raunverulega orðið að veruleika og að við förum bráðum að kvarta yfir skorti á roki og rigningu!

4 comments:
Til hamingju með nýja bloggið! :)
Bravó - þú getur þetta líka þó þú sért ekki komin á sjötugsaldurinn!!
Frábært! Núna þurfa bara Baddi og Eyrún að blogga og þá er hægt að fylgjast með öllum og við þurfum aldrei að hittast ;) :P
Baddi... og... Eyrún? Hvaða fólk er það? Ég finn þau ekki á blogspot.com... :þ :)
Post a Comment