Já, hér rignir líka eins og í Ameríkunni! En einhvern veginn grunar mig að sólin fari ekki að skína um hádegi, eins og hjá ykkur mamma... Við erum samt á leið í Þórsmörk á morgun með Vodafone starfsmönnum, þar sem við munum tjalda og fara í dagslanga göngu á laugardag. Eftir sólina síðustu vikur, þá verður rigningin bara skemmtileg tilbreyting :)
Og svo fer ég aftur að vinna eftir helgi og þá er svosem allt í lagi þótt rigni.
Hilmir er enn sofandi, enda er klukkan ekki nema 10:50 :) Hann hefur farið seint að sofa í sumarfríinu og vaknar ekki fyrr en undir hádegi. Vinirnir eru farnir að læra þetta og eru næstum hættir að hringja eða koma til að spyrja eftir honum á morgnana.
Thursday, July 19, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Nú er um að gera að setja myndir úr Þórsmerkurferðinni á bloggið! !
Góða ferð. MM
Tek undir það. Þórsmerkuferðar-myndir á diskinn minn? Já, takk.
Post a Comment